Skapandi rými í hjarta Reykjavíkur þar sem við sameinum allt sem við elskum. Gott kaffi, nýbakað bakkelsi, listsköpun, keramikverkstæði og verslun með úrvali af okkar eigin vörum ásamt hönnun og list annarra. Málaðu á keramik, keramiknámskeið og skapandi smiðjur fyrir börn, fjölskyldur og hópa.
Karitas er teiknari og hönnuður með yfir 15 ára reynslu í sjónrænni frásögn, vörumerkjasköpun og handgerðri hönnun. Verk hennar spanna grafíska hönnun, keramik og textíllist.
Undir nafninu Moumonde býr Karitas til einstaka keramikmuni, textíl og prentverk.
Manifesto
We cherish our inner child, the one who still believes in magic, monsters and the possibility of anything.
We want to inspire others to embrace their own quirks, their own oddities and their own unfiltered imagination.
We are here to create, be curious and most importantly stay humble.
Nevermind the imperfections ϟ
Daníel er listrænn stjórnandi, grafískur hönnuður og listamaður. Hann hefur yfir 20 ára reynslu í auglýsingum og grafískri hönnun.
Undir listamannsnafninu Loðmfjörð býr Daníel til einstök málverk innblásin af hugarástandi mannsins og náttúrunni.