Vilt þú gerast múmó meðlimur?
Þú getur sótt um gerast keramikmeðlimur hjá okkur. Aðildin felur í sér aðstöðu til að renna og handbyggja keramik, brennsla, öll verkfæri og búnaður sem þú þarft og afsláttur af öllum námskeiðum og á kaffihúsinu.
Handgert keramik
Við erum með stórt vinnuborð þar sem þú getur unnið að því að handbyggja þína eigin hluti, málað og glerjað.
Hvað er innfalið?
Innifalið í aðild eru öll tæki og tól og öll brennsla. Þú hefur aðgang að verkstæðinu frá kl. 10 til 22 alla daga.
Rennsla
Við erum með rennibekki þar sem þú getur rennt þína eigin hluti eða æft þig.
Njóttu þess að skapa í notalegu rými þar sem mistökum er fagnað
múmó leigir út verkstæðisrými til þeirra sem vilja stunda keramiklist sem áhugamál. Aðild kostar 35.000,- á mánuði og felur í sér notkun á verkstæðinu í allt að 30 klukkustundir á mánuði, öll verkfæri sem þú þarft, brennslu og hillu fyrir persónulegan búnað. Þú færð afslátt af öllum námskeiðum og á kaffihúsinu.
Verkstæðið er opið fyrir meðlimi alla daga milli 10:00 - 22:00. Það er þriggja mánaða skuldbindingartími við skráningu og 2 mánaða uppsagnarfrestur. Fyrstu þrír mánuðir eru reynslutími fyrir báða aðila.
Sendu okkur póst á mumo@mumo.is með upplýsingum um þig og við höfum samband.