• Námskeið - Leirkvöld með vinum

Námskeið - Leirkvöld með vinum

16,900 kr
Tax included.
Dagsetning:

2,5 tíma námskeið - Leirkvöld með vinum

Tími: kl. 18:00-20:30

Þetta námskeið er hugsað fyrir vinahópa sem vilja koma saman og eiga notalega kvöldstund með leir.

Námskeiðið býður upp á stutta kynningu á leirvinnu og ýmsum handmótunaraðferðum. Undir leiðsögn býrð þú til tvo hluti eftir eigin höfði og Í lok námskeiðsins verður hægt að mála hlutina.

Hlutirnir verða svo þurrkaðir, glerjaðir og brenndir eftir að námskeiðinu lýkur. Þegar þeir eru tilbúnir er hægt að sækja þá í verslunina; þetta ferli tekur um það bil 2-3 vikur. Þú færð tölvupóst þegar hægt verður að sækja hlutina.

Öll verkfæri og efni eru innifalin í námskeiðinu.

Boðið er uppá léttar veitingar.

Hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum.

Hámarksfjöldi er 6 manns.

Sendið póst á mumo@mumo.is ef þið eruð með stærri vinahóp og viljið bóka leirkvöld.

múmó leirnámskeið