Námskeið - Karaktervasi
2,5 tíma námskeið - Karaktervasi
Tími: kl. 18:00-20:30
Námskeiðið býður upp á stutta kynningu á leirvinnu og ýmsum handmótunaraðferðum. Undir leiðsögn býrð þú til þinn eigin karaktervasa. Í lok námskeiðsins verður hægt að mála vöruna.
Varan verður svo þurrkuð, glerjuð og brennd eftir að námskeiðinu lýkur. Þegar varan er tilbúin er hægt að sækja hana í verslunina; þetta ferli tekur um það bil 2-3 vikur. Þú færð tölvupóst þegar hægt verður að sækja vöruna.
Öll verkfæri og efni eru innifalin í námskeiðinu.
Boðið er uppá léttar veitingar.
Hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum.
Hámarksfjöldi er 6 manns.