múmó verður til
by Karitas Palsdottir
Okkur hjónunum hefur lengi dreymt um að skapa eitthvað. Í 20 ár höfum við unnið í hönnunar- og auglýsingabransanum og á sama tíma alltaf eitthvað frílans. Ég hef búið til óteljandi fermingar- og brúðkaupsstyttur úr leir, gert plötucover, barnabækur svo eitthvað sé nefnt. Fyrir 18 árum opnuðum við litla búð undir nafninu Krakk. Hún lifði því miður ekki lengi en var ótrúlega skemmtilegt og gefandi verkefni sem gerði það að verkum að alltaf var einhver lítill neisti sem vildi verða til. Eitthvað sem sat með okkur síðustu árin og beið eftir að við gripum hann. Þannig varð múmó til.