Vefsíðan er klár!

Vefsíðan er klár!

by Karitas Palsdottir

Síðustu mánuði höfum við setið við og unnið í vefsíðu múmó. Reyndar er þetta önnur síðan þar sem við vorum búin að setja hana upp í gegnum aðra þjónustu vitandi að það væri aðeins erfiðara að fá greiðslumiðlun á Íslandi í gegnum þá þjónustu. Okkur langaði að hafa trú á að það myndi ganga upp en því miður var það of mikið vesen. Þá þýddi ekkert annað en að velja aðra þjónustu og setja síðuna upp á nýtt. Við stefnum á að vera einnig með vefverslun en það er mikil vinna og hún mun koma seinna þegar búið er að byggja upp meiri lager.